Fyrirtæki

Þjónustan

FyrirtaekiStúdentamiðlun (áður Atvinnumiðstöð stúdenta) hefur um árabil þjónustað fyrirtæki og stofnanir um land allt með starfskrafta úr röðum stúdenta. Meirhluti þessara starfa hafa verið sumar-, hluta og tímabundin störf. Rétt til að skrá sig í atvinnuleit hjá Stúdentamiðlun hafa allir íslenskir nemar á framhalds- og háskólastigi og útlendingar sem stunda nám á Íslandi.

 

Þú leitar sjálfur að rétta starfsmanninum

Á vef Stúdentamiðlunar gefst fyrirtækjum og stofnunum kostur á að leita sjálf að starfsfólki án milligöngu starfsmanna miðlunarinnar.  Stúdentar sem skrá sig í atvinnuleit á Stúdentamiðlun þurfa að fylla út ítarlegt umsóknareyðublað og eru þar með komnir í gagnagrunn miðlunarinnar. Þeir geta einnig viðhengt fylgiskjöl s.s. ferilskrá, prófskírteini og mynd. Til að nýta sér þjónustuna kaupa fyrirtæki og stofnanir aðgang að miðluninni í tiltekinn tíma og geta þá bæði leitað í gagnagrunninum og/eða skráð auglýsingu.

Sjá nánar: Leiðbeinigar fyrir fyrirtæki

Verðskrá:

  • Aðgangur í 10 daga - kr. 13.230 m.vsk.
  • Aðgangur í 30 daga - kr. 31.430 m.vsk.

Einnig er boðið upp á samninga til 6 mánaða eða 1 árs. Slíkir samningar henta einkum fyrirtækjum og stofnunum með háa starfsmannaveltu.

 

 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón