Hagnýtar upplýsingar
Auglýsingagerð
Hvernig er best að byggja upp atvinnuauglýsingu?
Við gerð atvinnuauglýsingar er mikilvægt að fram komi sem nákvæmastar upplýsingar um tegund fyrirtækis, stærð og staðsetningu, starfssvið viðkomandi, vinnutíma og hvenær viðkomandi þarf að hefja störf eða starfstíma ef um tímabundið starf er að ræða. Þá þurfa að vera greinargóðar upplýsingar um hæfniskröfur og skilyrði s.s. aldur, menntun, reynslu og annað. Best er að byggja upp atvinnuauglýsingu samkvæmt neðantöldum liðum.
- Fyrirsögn sem vekur áhuga.
- Tegund, stærð og staðsetning fyrirtækis.
- Starfsheiti ásamt stuttri starfslýsingu.
- Hvers konar starf: hluta-, sumar-, tímabundið eða framtíðarstarf.
- Vinnutími og ráðningartími ef um tímabundið starf er að ræða.
- Hvenær viðkomandi á að hefja störf.
- Hæfniskröfur: menntun, reynsla, og þekking.
- Skilyrði: aldur og eiginleikar.



