Hagnýtar upplýsingar

Hvernig leita ég að hæfum starfskrafti úr röðum námsmanna?

Byrjaðu á að setja niður á blað hvaða kröfur þú gerir til viðkomandi starfskrafts:

  1. Hæfniskröfur s.s. nám, starfsreynsla, tölvukunnátta, tungumálakunnátta og/eða önnur kunnátta sem máli skiptir eins og t.d. bílpróf, vinnuvélaréttindi o.sv.frv.
  2. Aldur: lágmarks- og hámarksaldur (ef er), kyn, reykingaskilyrði og annað sem þú telur skipta máli.

Þá getur leitin hafist.

Þegar leitað er í leitarvél Stúdentamiðlunar skaltu byrja á því að smella á leita að starfskrafti. Þar geturðu valið nám, kyn og aldur og tegund starfs og vinnutíma. Ef út úr því kemur of langur listi skaltu fara í ítarlega leit: þar skaltu setja það sem þú settir í fyrstu leit og síðan bæta við því sem þú telur skipta máli eins og t.d. tölvukunnáttu, bílprófi, bókhaldskerfi, reykingaskilyrði og hvenær viðkomandi þarf að geta hafið störf, hversu lengi hann getur unnið o.sv.frv.

Í ítarlegri leit getur þú einnig prufað að leita eftir starfsreynslu, hvaða störf umsækjendur geta hugsað sér að vinna, áhugamálum og fleiru. Athugaðu ítarleg leit endurspeglar umsóknareyðublað, þannig að allt sem ítarleg leit býður upp á er mögulegt að skrá í umsóknaeyðublað námsmanna.

Ef þér líst vel á niðurstöður leitarinnir og telur þig geta fundið hæfan starfskraft skaltu kaupa. Þegar þú hefur greitt fyrir niðurstöðurnar geturðu skoðað niðurstöðurnar nánar og prentað út umsóknirnar í heild.

Leiðbeiningar um hvernig vinna á úr umsóknum og um ráðningarferlið er að finna í gagnlegum upplýsingum.

Ef nánari leiðbeininga er óskað hikið ekki við að hafa samband við starfsfólk Stúdentamiðlunar í síma 5700 700.



 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón