Hagnýtar upplýsingar
Úrvinnsla umsókna og ráðningarferlið?
Þegar atvinnurekandi fær umsóknir í hendur er honum oft vandi á höndum að velja rétta starfsmanninn úr hópi umsækjenda. Hér fyrir neðan eru nokkur atriði sem geta hjálpað við valið:
- Settu niður á blað þær kröfur sem þú gerir til umsækjenda og forgangsraðaðu þeim.
- Flokkaðu umsóknirnar þannig að þeir sem uppfylla allar kröfur fari í einn bunka og svo koll af kolli.
- Einbeittu þér síðan að þeim umsóknum sem uppfylla allar kröfur – lestu þær vandlega yfir og reyndu að mynda þér einhverja skoðun um viðkomandi. Veldu þá úr sem þér líst best á; þar reynir á skynsemi og hyggjuvit.
- Hafðu samband við umsagnaraðila ef umsækjandi hefur leyft það að honum forspurðum. Spurðu umsagnaraðila um þau atriði sem þú telur skipta máli (geta verið atriði eins og mæting, stundvísi, nákvæmni í vinnubrögðum, söluhæfileikar, samviskusemi, þjónustulund og svo mætti lengi telja).
- Nú meturðu aftur umsóknir í fyrsta úrtaki út frá meðmælum. Þá sem eftir standa boðarðu í viðtal.
Viðtalið:
- Til að brjóta ísinn og fá umsækjanda til að slaka á er oft gott að byrja viðtal á léttu spjalli t.d. um veðrið eða nýjustu viðburði.
- Skýrðu umsækjanda frá því hversu margir verði boðaðir í viðtal og lýstu svo starfinu nánar fyrir honum.
- Spurðu umsækjanda þeirra spurninga sem þú þarft og gefðu síðan umsækjanda færi á að spyrja sinna spurninga.
- Athugaðu hvort allt sé komið fram frá báðum aðilum.
- Skýrðu umsækjanda frá næstu skrefum í ráðningarferlinu og hvenær svars sé að vænta.



