Stúdentar

Skráning starfsumsóknar

SkraningFyrsta skrefið í leit að atvinnu í gegnum Stúdentamiðlun er að fyllta út umsóknareyðublað hér á vefnum. Þá er umsókn þín sjálfkrafa komin í leitarvél sem þau fyrirtæki og stofnanir sem kaupa sér aðgang að vefnum geta leitað í. Áður en þú fyllir út umsókn þarftu að skrá þig  sem notanda (sjá efst í hægra horni). Þú velur þér notendanafn og lykilorð og við það færðu þína eigin síðu. Þannig getur þú breytt, eytt og geymt umsókn þína, allt eftir þörfum auk þess að geta nýtt þér aðra þjónustu sem Stúdentamiðlunin býður upp á. Skráningin er ókeypis.

Sjá nánar Leiðbeiningar fyrir stúdenta

Þú markaðssetur sjálfan þig!

Mikilvægt er að vanda skráninguna. Allar upplýsingar sem beðið er um í umsóknareyðublaði skipta máli og auka líkurnar á því að nafn þitt komi upp í leit. Því nákvæmari umsókn því meiri líkur á að fá starf við hæfi. Atvinnurekendur hafa lítinn áhuga á illa útfylltri umsókn. Gættu að málfari og stafsetningu.

Sem sagt: gefðu þér góðan tíma!

  • Menntun og starfsreynslu skal skrá í tímaröð þ.e. það nám/starf sem þú stundaðir síðast skal skrá í efstu línu.
  • Merktu við þau störf sem þú getur hugsað þér að vinna við. Mikilvægt er að fylla í þessa reiti ef það eru einhver störf sem þú getur alls ekki hugsað þér að vinna við. Þannig er strax hægt að útiloka umsókn þína í þau störf.
  • Vertu raunsær í mati þínu á eigin getu t.d. tungumála- og tölvukunnáttu.
  • Félagsstörf og áhugamál geta skipt máli í leitinni. Dæmi: sportvöruverslun leitar t.d. að fólki með áhuga á íþróttum og ferðafélag að fólki með áhuga á útivist og ferðalögum.
  • Umsagnaraðilar skipta miklu máli og mikilvægt er að ræða við viðkomandi aðila áður en nafn þeirra er gefið upp á umsókn.
  • Hægt er að láta ferilskrá, ljósmynd, prófskírteini og meðmælabréf fylgja skráningunni. Þessi gögn geta komið að gagni séu þau vandlega unninn. Sjá leiðbeiningar um gerð ferilskrár.
 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón