Styrkir
Upplýsingar um námsstyrki
Handbók um styrki hjá ASK
Hér er að finna handbók Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins um styrki.
Nýsköpunarsjóður námsmanna
Nýsköpunarsjóður námsmanna var stofnaður 1992 til þess að útvega áhugasömum nemendum sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Umsóknarfrestur til að sækja um styrk fyrir sumarið 2006 rennur út 10. mars n.k. Sjá nánar um sjóðinn á www.rannis.is
Leonardo styrkir
Mannaskiptaáætlun Evrópusambandsins Leonardo Da Vinci gerir bæði stúdentum og nýútskrifuðum háskólanemum kleift að fara til landa innan sambandsins til skemmri tíma í vinnu tengda námi. Sjá nánar á www.leonardo.hi.is
Verkefnastyrkir FS
Verkefnastyrkir Félagsstofnunar stúdenta eru veitir þrisvar á ári. Sjá nánar um styrkinn hér http://www.fs.is/verkefnastyrkur-fs/
Lokaverkefnastyrkur VR
„Markmiðið með styrknum er að efla rannsóknir á vinnumarkaði með því að hvetja stúdenta sem eru við nám á háskólastigi til að huga betur að þessum málaflokki. Lokaverkefnin geta fjallað um hvað sem er, svo lengi sem það tengist vinnumarkaði. Umsóknirnar geta því komið úr flestum deildum innan háskólanna. Styrkurinn nemur alls kr. 250 þúsund kr.”
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðu VR.
Námsstyrkir banka og sparisjóða
Flestir bankar og sparisjóðir veita styrki til námsmanna sem eru í viðskiptum við þá. Sjá nánar á heimasíðum bankanna:
http://www.landsbanki.is/index.aspx?GroupId=162
http://www.glitnir.is/Einstaklingar/Umsoknir/Namsstyrkur/
http://www.spron.is/category.aspx?catId=1743&subID=1
http://www.kbbanki.is/?PageID=598
http://www.kbbanki.is/?PageID=592
Styrkir í umsjá Rannís og fl.
Styrkjamöguleikar fyrir íslenska framhaldsnema og rannsókna- og vísindafólk erlendis.
Ert þú
- á leið út í framhaldsnám
- í framhaldsnámi við háskóla erlendis
- við rannsóknastörf erlendis
- á leið heim úr háskólanámi eða rannsóknastörfum
og hefur áhuga á að fá upplýsingar sendar í tölvupósti um styrkjamöguleika til framhaldsmenntunar og rannsóknarvinnu?
Skráðu þig þá í gagnabanka Rannís. Hann er að finna á heimasíðu Rannís (http://www.rannis.is/).
Styrkir til framhaldsnáms í Japan - Áhugasamir geta haft samband við Sendiráð Japans á japan@itn.is og í síma 510-8600.
HEIMKOMUSTYRKIR MARIE CURIE - sjá nánar http://www.rannis.is/page.asp?id=987
Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms
Þróunarsamvinnustofnun Íslands auglýsir til umsóknar styrki til meistara- og doktorsnáms á starfssviðið stofnunarinnar. Að þessu sinni verða veittir tveir styrkir til doktorsnáms og tveir til meistaranáms. Nánari upplýsingar hér



