Algengar spurningar

Hvernig á að búa til ferilskrá?

Nánar um fyrirspurnina:

Hvernig á að búa til ferilskrá?

Fullt svar:

Hvernig á að gera ferilskrá?

Ferilskrá á að vera þannig úr garði gerð að hún endurspegli menntun, reynslu og hæfni umsækjanda. Lengd ferilskrár fer eftir menntun og reynslu en algengt er að ferilskrá rúmist á A4-blaði. Útlit ferilskrár skal vera einfalt og aðgengilegt. Forðast skal allt skraut og flúr. Mikilvægt er að málfar sé stutt, hnitmiðað og vandað og að stafsetning sé í lagi.

Eftirfarandi þættir þurfa að koma fram á ferilskrá:

Persónulegar upplýsingar:

Nafn, heimilisfang, símanúmer, kennitala, hjúskaparstaða og fjölskylduaðstæður. Æskilegt er skanna inn andlitsmynd efst á umsóknina.

Markmið:

Sumir kjósa að setja markmið á ferilskrá. Það á þó einungis við þegar leitað er að framtíðarstarfi. Þar getur viðkomandi lýst óskum sínum og markmiðum í stuttu máli þ.e. hvers konar starf hann stefnir að að vinna í framtíðinni.

Menntun:

Efst er lokapróf/menntun sem er næst í tímaröð t.d. frá háskóla, sérskóla eða framhaldsskóla eftir því sem við á, síðan kemur t.d. frmhaldsskóli og síðast grunnskól. Einnig má tilgreina lengri námskeið sem geta haft þýðingu. Stutt námskeið er óþarfi að tíunda.

Starfsreynsla:

Mikilvægt er að gefa nákvæmt yfirlit yfir fyrri störf. Byrja á núverandi starfi eða síðasta starfi síðan næsta þar á undan og þannig koll af kolli. Ekki þarf að gera grein fyrir sumarstörfum ef langt er um liðið. Í ferilskrá þarf að koma fram nafn fyrirtækis, starfsheiti þitt innan þess og tímabil á hverjum stað.

Áhugamál:

Með því að greina frá áhugamálum og tómstundum fær atvinnurekandi mynd af umsækjanda sem persónu. Það ýtir svo undir að hann muni eftir honum þegar ákvörðun um ráðningu er tekin.

Meðmælendur:

Meðmælandi (eða umsagnaraðili ef svo ber undir) gefur upplýsingar um hvernig umsækjandi hefur staðið sig við fyrri störf og hvernig hann er sem einstaklingur. Meðmælandi er oftast fyrrverandi vinnuveitandi en getur þó verið kennari eða vinnufélagi. Mikilvægt er að hafa alltaf samband við þann, eða þá sem tilgreindir eru sem meðmælendur á ferilskrá áður en hún er send til atvinnurekanda.

Fylgigögn:

Fylgiskjöl eru prófskírteini, ýmis vottorð um menntun og/eða störf, sem og einkunnir úr skóla. Einnig geta þetta verið vottorð um tómstundastörf og aðra sjálfboðavinnu. Góð meðmælabréf frá fyrrum vinnuveitanda eru alltaf til bóta. Fylgiskjöl og meðmælabréf eru merkt í númeraröð, þannig að númerin á þeim séu í samræmi við þau númer sem gefin eru upp í ferilskrá.

Mundu að erfitt er að breyta fyrstu hughrifum sem ferilskrá vekur.

Dæmi um uppsetningu á ferilskrá:


 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón