Hvernig leita ég að framtíðarstarfi?
Nánar um fyrirspurnina:
Hvernig leita ég að framtíðarstarfi?
Fullt svar:
Atvinnumiðstöð stúdenta (nú Stúdentamiðlun) hefur þróast þannig að fyrirtæki hafa frekar leitað til hennar varðandi sumar-, hluta- og tímabundin störf. Það kemur þó fyrir að framtíðarstörf berast inn á borð til okkar og því ráðleggjum við stúdentum sem eru að leita að framtíðarstarfi að skrá sig hjá okkur. Ennfremur ráðleggjum við stúdentum að skrá sig hjá öllum öðrum starfandi ráðningaþjónustum. Leit að framtíðarstarfi við hæfi getur tekið langan tíma og krefst því mikillar þolinmæði. Mikilvægt er að leita allra leiða í leitinni. Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga: Útbúðu vandaða ferilskrá (sjá leiðbeiningar um gerð ferilskrár). Skráðu þig á öllum helstu ráðningaþjónustum og pantaðu viðtal við ráðningarfulltrúa þar sem það er í boði. Íhugaðu vandlega hvað þú getur hugsað þér að starfa við og hjá hvaða fyrirtækjum. Sendu ferilskrána þína til þessara fyrirtækja og freistaðu þess að komast í viðtal hjá starfsmannastjóra eða þeim sem hefur með ráðningar hjá fyrirtækinu að gera. Reyndu að nýta þér öll “sambönd”. Gangi þér vel í atvinnuleitinni.



