Algengar spurningar

Hvaða laun á ég að fá?

Nánar um fyrirspurnina:

Hvaða laun á ég að fá?

Fullt svar:

Hvaða laun á ég að fá? Stúdentamiðlun hefur haft þá stefnu að gefa ekki ráð varðandi launamál, þ.e.er hvað viðkomandi á að fá greitt í laun fyrir vinnu sem hann fær fyrir milligöngu Stúdentamiðlunar. Okkar markmið er fyrst og fremst að miðla atvinnu til stúdenta og öfugt. Við ráðleggjum hins vegar stúdentum að leita sér aðstoðar hjá viðkomandi stéttarfélögum. Afgreiðslu-, verslunar-, skrifstofu-og lagerstörf á almennum vinnumarkaði leiti til Verslunarmannafélags Reykjavíkur www.vr.is eða sambærilegs félags ef um starf úti á landi er að ræða sjá www.landssamband.is Sarfsmenn hjá ríkinu sem ekki eiga aðild að öðrum stéttarfélögum og starfsmenn hjá fyrirtækjum sem starfa í almannaþágu eins og t.d. ófaglærðir starfsmenn á sambýlum, sjúkrahúsum og elliheimilum leiti til SFR, www.sfr.is eða www.sgs.is þar sem hægt er að finna tengingar á stéttarfélög á hverju svæði fyrir sig. Iðnverkafólk, leiti til Starfsgreinasambands Íslands www.sgs.is: í Reykjavík www.efling.is, Þá bendum við sérstaklega á www.rettindi.is sem er vefur um réttindi ungs fólks á vinnumarkaði.


 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón