Á ég að gera ráðningarsamning?
Nánar um fyrirspurnina:
Á ég að gera ráðningarsamning?
Fullt svar:
Á ég að gera ráðningasamning? Ákvæði kjarasamninga gera ráð fyrir að allir starfsmenn fái kjör sín staðfest skriflega. Þar þarf að koma fram ráðningartími og eftir hvaða kjarasamningi kaup og kjör eigi að fara. Mikið öryggi felst í því að hafa undir höndum skriflega staðfestingu ráðningar.Ef upp kemur ágreiningur þá getur ráðningarsamningur skipt öllu máli. Á skrifstofu stéttarfélags þíns er hægt að fá frekari upplýsingar um gerð skriflegra ráðningarsamninga og sérstök eyðublöð til að gera slíka samninga. (upplýsingar frá www.réttindi.is)



