Leita að vinnu - niðurstaða leitar

Herferðarstarfsfólk hjá Amnesty International

Skemmtilegt, gefandi og vel launað sumarstarf sem er tilvalið fyrir hugsjónaríkt háskólafólk. Amnesty International óskar eftir að ráða starfsmenn í félagaherferð okkar í sumar. Starf þitt felst í að fá fólk til liðs við Amnesty International. Þú munt vinna í hópi einstaklinga og nálgast fólk á götum úti, þannig að það geti kynnst Amnesty á persónulegan hátt, borið fram spurningar og fengið svör um hæl. Við leitum að opnum, jákvæðum og ábyrgum einstaklingum, sem hafa áhuga á mannréttindum. Við bjóðum starfsfólki okkar: fræðslu um mannréttindi; góð laun og gott vinnuumhverfi; innsýn í starf alþjóðlegra félagasamtaka; þægilegan vinnutíma og möguleika á ferðalögum innanlands. Amnesty International eru stærstu mannréttindasamtök í heimi. Hugsjón þeirra miðar að heimi þar sem sérhver einstaklingur nýtur allra þeirra réttinda sem fólgin eru í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og öðrum mannréttindasáttmálum. Með það að markmiði sinnir Amnesty International rannsóknum og grípur til aðgerða í því skyni að hindra og stöðva alvarleg brot á mannréttindum, í samræmi við þann tilgang samtakanna að efla virðingu fyrir öllum mannréttindum.

Starf

  • Starfstegund: Sumarstarf
  • Vinnutími: Fullt starf
  • Starfssvið: Markaðs- og sölustörf
  • Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
  • Starfstímabil: frá 25.5.2011 til 20.8.2011

Fyrirtæki

  • Nafn: Amnesty International á Íslandi
  • Tengiliður: Amnesty International á Íslandi
  • Netfang: tgj@amnesty.is
  • Sími: 5117905

Umsókn

Ath. aðeins þeir notendur sem eiga fullskráða og birta starfsumsókn, býðst að senda inn umsóknir af vefnum.

Til baka Ný leit Bókamerkja

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón