Hagnýtar upplýsingar
Framtíðarstörf
Atvinnumiðstöð stúdenta hefur þróast þannig að fyrirtæki hafa frekar leitað til hennar vegna ráðninga í sumar-, hluta- og tímabundin störf. Það kemur þó fyrir að framtíðarstörf berast inn á borð til okkar og því ráðleggjum við stúdentum sem eru að leita að framtíðarstarfi að skrá sig hjá okkur. Ennfremur ráðleggjum við stúdentum að skrá sig hjá öllum öðrum starfandi ráðningaþjónustum auk þess að fylgjast vel með atvinnuauglýsingum í dagblöðum og á vefmiðlum.
Leit að framtíðarstarfi við hæfi getur tekið langan tíma og krefst því mikillar þolinmæði. Mikilvægt er að leita allra leiða í leitinni. Hér eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga:
- Útbúðu vandaða ferilskrá (sjá leiðbeiningar um gerð ferilskrár).
- Lærðu að útbúa atvinnuumsókn (sjá leiðbeiningar um gerð atvinnuumsóknar).
- Skráðu þig á öllum helstu ráðningaþjónustum og pantaðu viðtal við ráðningarfulltrúa þar sem það er í boði.
- Fylgstu vandlega með atvinnuauglýsingum í dagblöðum, á vefmiðlum og hjá fyrirtækjum (tenglar); sum stærri fyrirtækja auglýsa laus störf á eigin upplýsingavef.
- Íhugaðu vandlega hvað þú getur hugsað þér að starfa við og hjá hvaða fyrirtækjum. Sendu ferilskrána þína til þessara fyrirtækja og freistaðu þess að komast í viðtal hjá starfsmannastjóra eða þeim sem hefur með ráðningar hjá fyrirtækinu að gera.
- Nýttu þér öll möguleg „sambönd” og ekki hika við að láta þau orð berast að þú sért í atvinnuleit.
Gangi þér vel.



