Hagnýtar upplýsingar
Hvernig er best að útbúa atvinnuumsókn?
Engar reglur eru til um það hvernig sækja á um starf eða hvernig atvinnuumsókn á að líta út. Umsóknin getur þó verið mikilvægasta skrefið í atvinnuleitinni ef það eru fyrstu kynni atvinnurekandans af þér.
Gott er að miða við að atvinnuumsókn sé umsóknarbréf á einni síðu, ferilskrá á annari og fylgiskjölin síðan í réttri röð.
Skýringar: Atvinnuumsókn er persónulegt bréf til vinnuveitanda þar sem sótt er um starf og ferilsskrá er yfirlit yfir náms- og starfsferil umsækjanda. Ferilsskrá er stundum nefnd CV sem stendur fyrir Curriculum Vitae sem er latína og þýðir u.þ.b. lífshlaup og einnig er franska orðið Résumé notað.
Atvinnuumsókn má skipta í þrjá þætti:
- Umsóknarbréf. Í umsóknarbréfi kemur fram hver sækir um hvaða starf, hvers vegna sótt er um starfið og hvað það er sem gerir umsækjanda hæfan til að gegna því.
- Ferilskrá. Þar eru tíundaðar persónulegar upplýsingar, menntun, starfsreynsla, áhugamál og meðmælendur. Sjá nánar um gerð ferilskrár.
- Fylgiskjöl t.d. prófskírteini og meðmælabréf.



