Atvinnuviðtalið
Viðtalið getur farið fram hjá atvinnurekanda eða ráðningarþjónustu. Í flestum tilfellum er atvinnurekandinn búinn að fá skriflega umsókn og veitir viðtalið honum mikilvægar upplýsingar til viðbótar. Reyndu að fá upplýsingar um hverjir munu taka viðtalið. Oftast er boðað í atvinnuviðtal símleiðis og þá er hægt að spyrja um þetta atriði.
- Aflaðu þér upplýsinga um fyrirtækið og starfsemi þess, t.d. í fyrirtækjaskrám og ársskýrslu.
|
- Undirbúðu nokkrar spurningar sem þú vilt fá svör við. Hafðu í huga að viðtalið snýst ekki eingöngu um það hvort viðmælandunum líst á þig heldur einnig hvernig þér líst á fyrirtækið og yfirmenn þess.
|
|
|
- Útlitið er það fyrsta sem spyrjandinn tekur eftir. Vertu snyrtilega klædd/ur.
|
- Rökstyddu svör þín og svaraðu af einlægni frekar en að reyna að þóknast viðmælandanum. Vertu þú sjálf/ur og vertu viðbúin að lýsa kostum þínum.
|
- Gott er að rifja upp fyrri reynslu af atvinnuviðtali. Er þar eitthvað sem þú getur lært af?
|
- Búðu þig undir að svara erfiðum spurningum á jákvæðan hátt.
|
- Vertu jákvæð/ur og áhugasöm/samur um starfið sem þú ert að sækja um.
|
Þegar í viðtalið er komið er mikilvægt að hafa nokkur atriði í huga sem geta hjálpað við að slaka á og gefa forskot á þann næsta sem tekinn verður í viðtal.
- Heilsaðu öllum með handabandi og leggðu nöfn þeirra og starfsheiti á minnið. Taktu í hendina á öllum, líka þeim sem tekur á móti þér.
|
- Mundu að allflestir eru óstyrkir við þessar kringumstæður. Það á við um umsækjendur og oft ekki síður þá sem taka viðtölin.
|
- Yfirleitt eru fleiri en einn aðili úr fyrirtækinu sem taka viðtalið.
|
- Láttu þá um að hefja samtalið.
|
- Horfðu á þann sem talar og svaraðu þeim sem spyr.
|
- Hlustaðu vel á spurningarnar og spurðu ef eitthvað er óljóst.
|
- Sýndu að þú hafir áhuga á starfinu.
|
- Ekki tala niðrandi um fyrri yfirmenn eða fyrri störf.
|
Oft er það þannig að þó umsækjandi sé vel undirbúin þarf ekki að vera að sá sem tekur viðtalið sé það. Því má búast við ýmsu, sumir tala mjög mikið á meðan aðrir eru rólegir.
Þegar viðtalinu er lokið er oft spurt hvort þú hafir einhverjar spurningar. Þú hefur að sjálfsögðu leyfi til þess að spyrja spurninga. Margir eru óvissir hvort þeir eigi að spyrja um laun, frí og slíka hluti í fyrsta viðtali. Engin regla er til um þetta, en þú skalt alla vega ekki hafa þessar spurningar efstar á listanum. En það getur verið frekar jákvætt að spyrja að fyrra bragði um starfið, starfsemina, vinnuaðstæður, frítíma, yfirvinnu og samstarfsfólk.
- Fáðu uppgefið hvenær þú megir hringja til þess að fá upplýsingar um hvort þú hafir verið ráðin/n. Mundu eftir að hringja á þessum tíma.
|
- Nefndu, að ef þú fáir ekki starfið, hafir þú áhuga á að vera á blaði hjá þeim áfram ef skyld störf losna.
|
- Þakkaðu fyrir og kveddu alla með handabandi.
|