Húsnæði
Húsnæðismiðlun
Húsnæðismiðlunin er gagnvirk og eingöngu starfrækt milliliðalaust á netinu.
Húseigendur skrá eignir sínar alla jafna sjálfir gegn 1.200 kr. gjaldi og stúdentar geta skoðað auglýsingarnar. Þeir setja sig svo í beint samband við eigandur. Þegar húsnæði hefur verið leigt getur leigusali tekið auglýsingu sína út en annars dettur hún sjálfkrafa út eftir viku.
Stúdentamiðlun er ekki ráðgefandi varðandi leiguverð og leggur hvorki mat á leigusala né leigutaka í neinu tilliti.
Þar sem fjöldi erlendra stúdenta nýtir sér þjónustu miðlunarinnar bendum við húseigendum á að setja einnig inn lýsingu á húsnæðinu á ensku.
Stúdentar
Hér getur þú leitað að leiguhúsnæði. Ef þú finnur húsnæði sem hentar þér settu þig þá í samband við húseiganda.
Húseigendur
Hér gefst húseigendum kostur á að auglýsa húsnæði til leigu. Leiguauglýsing kostar kr. 1.200 og birtist í 7 daga. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða innlögn á bankareikning.



