Húseigendur
Greið leið að góðum leigjendum

Hér gefst húseigendum kostur á að auglýsa húsnæði sitt á vef sem er einkar vel sóttur af stúdentum við Háskóla Íslands sem og öðrum háskólanemum.
Húseigendur skrá húsnæði sitt gegn gjaldi. Auglýsing í 1 viku kostar kr. 1.200.
Þar sem fjöldi erlendra stúdenta nýtir sér þjónustu miðlunarinnar bendum við húseigendum á að setja einnig inn lýsingu á húsnæðinu á ensku.
Þegar eigandi hefur fundið leigjanda getur hann tekið auglýsinguna út af vefnum. Það er gert með því að innskrá sig með notandanafni og lykilorði. "Síðan mín" er valin og smellt á Stöðva eða Henda við titil auglýsingarinnar. Frekari aðstoð veita starfsmenn Stúdentamiðlunar í síma 5700 700 eða með tölvupósti til atvinna@fs.is



