Leiðbeiningar

Fyrir stúdenta í leit að starfi

Stúdentar sem fylla út starfsumsókn hér á vefnum fara sjálfkrafa í gagnagrunn og geta þannig komið upp í leit hjá þeim fyrirætkjum sem eiga aðgang að vefnum.

Hvernig kemst ég á skrá?

  1. Byrjaðu á því að skrá þig sem notanda að vefnum. Sjá Nýskráning. Athugaðu! þú velur þér sjálfur notandanafn og lykilorð og í hvert skipti sem þú notar vefiinn þarftu að innskrá þig með notandanafni og lykilorði.  Skráðir notendur geta nýtt sér alla þjónustu vefsins eins og skiptibókamarkað, lokaverkefnabanka o.fl.
  2. Veldu Skrá starfsumsókn og fylltu vandlega út. Athugaðu! því nákvæmari umsókn þess meiri líkur að fá starf við hæfi. Þú getur hengt við umsóknina eigin skjöl, eins og CV, ljósmynd, prófskírteini og meðmæli.
  3. Þegar þú hefur fyllt út umsóknina smelltu þá á "Fullskrá og birta". Starfsumsóknir birtast í 30 daga á vefnum. Ef þú vilt vera áfram á skrá birtirðu umsóknina aftur (sjá 5. lið)
  4. Einungis þeir sem eiga skráða starfsumsókn geta sótt um þau störf sem eru auglýst á vefnum. Til að sækja um innskráir þú þig með notandanafni og lykilorði, velur starfið sem þú vilt sækja um, skrifar í reitinn "Umsóknartexti" og sendir. Skráningin (þ.e. umsóknareyðublaðið) ásamt viðhengjum hengist sjálfkrafa við auglýsinguna og tengiliður fyrirtækisins fær umsvifalaust tilkynningu í tölvupósti um að þú hafir verið að sækja um.
  5. Síðan mín. Allir skráðir notendur fá úthlutað eigin síðu. Þar getur þú haldið utan um öll þau gögn sem þú hefur sett inn á vefinn, eins og starfsumsókn, bókaauglýsingu, lokaverkefni o.sv.frv.  Þú getur t.d. birt þau aftur, eytt þeim og breytt þeim.
    • Til að breyta umsókn: veldu Breyta
    • Til að birta umsókn aftur: veldu Birta
    • Tila að eyða umsókn: veldu Henda
  6. Hagnýtar upplýsingar fyrir stúdenta. Hér er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar sem geta komið að góðum notum í atvinnuleitinni. Komi einhverjar spurningar upp skoðaðu þá Algengar spurningar.  Ef það gagnast ekki hafðu þá samband við starfsmenn Stúdentamiðlunar.

 



 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón