Leiðbeiningar

Fyrir fyritæki í leit að starfsfólki

Til að nýta sér vinnumiðlun Stúdentamiðlunar  þurfa fyrirtæki að kaupa sér aðgang að vefnum.

  1. Byrjaðu á því að skrá fyrirtækið eða kaupandann sem notanda (sjá "Nýskráning" efst í hægra horni).  Alltaf þegar þú notar vefinn þarftu að innskrá þig með notandanafni og lykilorði. Veldu síðan Kaupa aðgang.
  2. Þegar þú ert búin að kaupa aðgang geturðu bæði leitað í gagnagrunninum að starfsfólki og/eða skráð atvinnuagulýsingu.  Hvoru tveggja er innifalið í kaupunum.
  3. Ef þú kýst að skrá atvinnuauglýsingu birtist hún þann tíma sem þú hefur aðgang að vefnum. Um leið og einhver sækir um starfið færðu tilkynningu í tölvupósti þar um. Þú getur síðan skoðað umsóknirnar á Síðan mín.  Auglýsingin þín geymist á síðunni þinni þannig að þú getur birt hana aftur.
  4. Allir skráðir notendur fá eigin síðu ("Síðan mín").  Til að komast á síðuna þína þarftu að innskrá þig með notandanafni og lykilorði. Á síðunni þinni geymast öll gögn sem þú setur sjálfur á vefinn eins og atvinnuauglýsingar. Þar geturðu einnig unnið með gögnin þín í liðnum Aðgerðir:

  • Skoða umsóknir um auglýst starf: veldu Umsóknir
  • Breyta auglýsingu: veldu Breyta
  • Birta auglýsingu aftur: veldur Birta
  • Eyða auglýsingu: veldu Henda 

Ef þú kýst hins vegar að leita í gagnagrunninum - skaltu gefa þér góðan tíma. Byrjaðu á grófri leit  t.d. tegund starfs, vinnutíma og námi. Ef of margir koma út úr því skaltu velja Ítarlega leit og þrengja skilyrðin. Góð leið til að finna rétta starfsfólkið er að haka í Starfsgrein í ítarlegeri leit - þar geturðu t.d. sorterað úr alla þá sem geta hugsað sér að vinna við umönnun barna, afgreiðslustörf, bókhald, garðyrkju o.sv.frv.

Sérstök ástæða þykir til að nefna að atvinnurekendum ber að fara að lögum um jafnan rétt karla og kvenna þegar laus störf eru auglýst. Jafnréttislöggjöfina má finna á vef Alþingis.

Stúdentamiðlun áskilur sér rétt til að fjarlægja af vefnum þær auglýsingar sem brjóta í bága við lögggjöf eða þykja á einhvern hátt ósæmilegar.

Frekari aðstoð veita starfsmenn Stúdentamiðlunar í síma 5700 700 , netfang: atvinna@fs.is

 



 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón