Fréttir og Tilkynningar

Kennsla

Nýtt vefsvæði opnað með viðhöfn

Þann 2. febrúar var nýr vefur Stúdentamiðlunar opnaður með viðhöfn í stúdentaheimilinu við Hringbraut.  Viðstaddir voru fullrúar stúdenta, Félagsstofnunar stúdenta og fjölmiðla.  Rektor Háskóla Íslands og formaður SHÍ opnuðu formlega nýja vefinn en hans hefur verið beðið með eftirvæntingu bæði af stúdentum og starfsfólki FS auk þess sem fyrirtækin í landinu hafa nú fengið eitt skilvirkasta tæki sem um getur til að leita að hæfum stúdentum til starfa.  Ein af  nýjungunum á vefnum er lokaverkefnamiðlunin sem gefur stúdentum möguleika á að koma verkefnum sínum á framfæri við áhugasöm fyrirtæki um leið og fyrirtækjum gefst tækifæri til að skoða á einum stað þau lokaverkefni sem unnin hafa verið.  Þessi nýjung sem og aðrar á nýja vefnum verða kynntar rækilega næstu vikur og mánuði.

 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón