Fréttir og Tilkynningar
Stúdentamiðluninni vel tekið
studentamidlun.is hefur verið vel tekið jafnt af stúdentum sem og fyrirtækjum og einstaklingum. Einhverjir byrjunarörðugleikar komu upp og hafa vefsmiðirnir unnið hörðum höndum við lagfæringar. Á annað hundrað manns hafa skráð sig á vefinn í atvinnuleit og þó nokkur fjöldi starfa er í boði auk húsnæðis. Vert er að vekja athygli á því að einungis nýjustu störfin eru á forsíðunni. Til að sjá önnur störf í boði þarf aðsmella á Leita að starfi. Starfsfólk Stúdentamiðlunar hvetur alla námsmenn í atvinnuleit að fylla út umsókn á vefnum og vekur einnig athygli útskrifarnema á Lokaverkefnabankanum. Þá viljum við nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu sem sent hafa athugasemdir um það sem betur má fara á vefnum.



