Fréttir og Tilkynningar
Nýsköpunarsjóður námsmanna auglýsir eftir styrkumsóknum
Frestur til að sækja um styrk úr Nýsköpunarsjóði námsmanna vegna sumarsins 2006 rennur út þann 10. mars n.k. Hlutverk sjóðsins er að útvega áhugasömum nemendur sumarvinnu við metnaðarfull og krefjandi rannsóknarverkefni. Einungis er hægt að sækja um rafrænt í gegnum heimasíðu sjóðsins www.nsn.is þar sem einnig eru allar frekari upplýsingar um sjóðinn.



