Fréttir og Tilkynningar
35-40 störf auglýst hjá Stúdentamiðlun
Þessa dagana eru að jafnaði 35-40 störf auglýst hjá Stúdentamiðlun. Auk þess eru fjöldi fyrirtækja að leita að starfsfólki í gagnagrunninum. Um 300 námsmenn eru að meðaltali á skrá og bætast nýjir við daglega, en umsækjendur detta sjálfkrafa út af skrá eftir 30 daga. Vekjum athygli námsmanna á því að auglýst störf þarf að sækja um þó maður sé á skrá. Það er einföld aðgerð. Innskráið ykkur með notandanafni og lykilorði og veljið starfið sem sækja á um. Skrifið umsóknartexta og smellið á senda.



