Fréttir og Tilkynningar

Búðu þig undir markvissa starfsleit!

Námsráðgjöf Háskóla Íslands býður háskólastúdentum upp á örfyrirlestur um hvernig hægt sé að búa sig undir markvissa starfsleit. Hvað þarf að hafa í huga þegar sótt er um atvinnu? Hvernig er starfsferilsskrá sett saman og hvernig er hægt að auka líkurnar á því að fá draumastarfið. Námsráðgjafar NHÍ vonast til að sem flestir sjái sér fært að mæta. Gott væri að tilkynna þátttöku á netfangið radgjof@hi.is.

Staður: Lögberg 101

 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón