Fréttir og Tilkynningar

Vinna við tölvu

Kynning á atvinnu- og námstækifærum í Evrópu

Þann 29. september næst komandi stendur EES vinnumiðlun (EURES) fyrir kynningu á atvinnu- og námstækifærum í Evrópu í Sunnusal Hótel Sögu. Kynningin stendur yfir frá kl. 13-16 og er haldin í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar Evrópusambandsins.

Kynningin er hluti af evrópusku verkefni þar sem áhersla er lögð á hreyfanleika á vinnumarkaði á árinu 2006 - European Year of Workers Mobility 2006.

Sérfræðingar frá Norðurlöndum, Bretlandi, Írlandi og Spáni kynna atvinnutækifæri í sínum löndum. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins kynnir tækifæri til náms, einnig verða kynnt tækifæri til starfsþjálfunar á vegum Leonardo skrifstofunnar og Europass verður kynnt.

 

EES-vinnumiðlun


 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón