Fréttir og Tilkynningar

Sirkill og reglustika

Námsstyrkir í verkfræði og raunvísindum

Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar: Námsstyrkir í verkfræði og raunvísindum.

Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir námsstyrkjum vegna náms á skólaárinu 2006-2007. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði og raunvísindum og hafa þeir einkum verið veittir nemendum í doktorsnámi.

Með umsóknum skulu fylgja staðfesting á skólavist og námsárangri, tvenn meðmæli, ferilskrá og önnur þau verk sem umsækjandi telur að komið geti að gagni við mat umsóknar.

Umsóknum ber að skila til:

Alþjóðaskrifstofu Háskólastigsins,

Neshaga 16,

IS 107 REYKJAVÍK

eða í tölvupósti til Sigurðar Brynjólfssonar, formanns sjóðsstjórnar, sb@hi.is. Nánari upplýsingar eru á vefsvæðinu http://www.hi.is/~sb/minningarsjodur.

 Umsóknarfrestur er til 23. október 2006. Stefnt er að því að tilkynna úthlutun í lok nóvember.



 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón