Fréttir og Tilkynningar
Námsstyrkir til framhaldsnáms við bandaríska háskóla
Stjórn Stofnunar Leifs Eiríkssonar hefur ákveðið að veita fimm styrki til framhaldsnáms skólaárið 2007-08. Styrkirnir eru ætlaðir íslenskum námsmönnum til doktors- eða meistaranáms við háskóla í Bandaríkjunum og bandarískum til náms við íslenska háskóla. Styrkirnir verða að hámarki $ 25.000.
Þetta verður í annað skiptið, sem stofnunin veitir slíka styrki. Fyrir námsárið 2006-07 var þremur bandarískum og tveimur íslenskum námsmönnum veittir styrkir. Samtals bárust 26 umsóknir, allar mjög góðar, sem skiptust jafnt á milli landanna.
Umsóknarfrestur er til 1. desember. Umsóknareyðublöð verður unnt að nálgast á vefnum undir www.leifureirikssonfoundation.org. Umsóknir má senda rafrænt eða leggja inn á Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands. Meðmæli og önnur skrifleg gögn þurfa að berast fyrir 15. desember.
Sjá nánar: www.leifureirikssonfoundation.org.



