Fréttir og Tilkynningar
Starf sérfræðings við Ferðamálasetur og Hólaskóla
Til rannsóknafólks erlendis.
Starf sérfræðings við Ferðamálasetur Íslands og Háskólann á Hólum er
laust til umsóknar. Umsækjanda er ætlað að starfa að Hólum og stunda
rannsóknir og kennslu á sviðum ferðamálafræði. Staðan skiptist til
helminga milli Ferðamálaseturs og Hólaskóla. Kennsluskylda er gagnvart
þeim síðarnefnda, en rannsóknarskylda gagnvart Ferðamálasetri.
Um ráðningu til þriggja ára er að ræða með möguleika á fastráðningu, með
þeim fyrirvara þó að fyrstu sex mánuðir skoðast sem gagnkvæmur
reynslutími.
Eftirfarandi skilyrði eru höfð til hliðsjónar við ráðningu í stöðuna:
· Að umsækjandi búi yfir sérþekkingu á einhverju eftirtalinna sviða:
Umhverfisfræði, náttúrufræði, menningarfræði eða afþreyingarfræði.
· Að umsækjandi búi yfir reynslu af og þekkingu á ferðaþjónustu á
norðurslóðum.
· Um hæfi umsækjenda fer eftir ákvæðum laga um Hólaskóla, háskólinn á
Hólum.
Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni rækilega skýrslu um
vísindastörf sem þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
vottorð um námsferil sinn og störf. Með umsókninni skulu send þrjú
eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum og óbirtum, sem
umsækjandi óskar eftir að metin verði (á rafrænu formi í þremur
eintökum). Að auki má senda umsagnir tveggja eða þriggja dómbærra manna
á vísindasviði umsækjanda. Einnig er nauðsynlegt að í umsókn komi fram
hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið að, hverju þeir vinna að núna og
ítarleg lýsing á fyrirhuguðum rannsóknum þeirra ef af ráðningu yrði.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi BHM við Hólaskóla.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2007 og skal umsóknum og
umsóknargögnum skilað í þremur eintökum til Ferðamálaseturs Íslands,
Borgum við Norðurslóð, 600 Akureyri.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfum
starfsins þegar ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veita forstöðumaður Ferðamálaseturs Dr. Edward H.
Huijbens, edward@unak.is og deildarstjóri Ferðamáladeildar Hólaskóla
Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, ggunn@holar.is.



