Fréttir og Tilkynningar

Frétt frá hi-starf til rannsóknafólks erlendis

Stiftelsen Clara Lachmanns Fond er norrænn menningarsjóður. Tilgangur sjóðsins er að efla tengsl og samkennd Norðurlandanna með því að stuðla að aukinni og gagnkvæmri þekkingu á menningu og sögu. Skilyrði er að umsækjendur séu frá fleiri en einu Norðurlandanna. Sjóðurinn veitir meðal annars styrki vegna þátttöku á ráðstefnum, málþingum eða öðrum viðburðum sem heyra undir tilgang sjóðsins. Einnig eru veittir styrkir vegna náms- og starfsferða.

Umsóknarfrestur er til 15. janúar. Umsóknareyðublöð, reglur, leiðbeiningar og nánari upplýsingar má nálgast á Upplýsingaskrifstofu Háskóla Íslands og á heimasíðu sjóðsins: http://www.claralachmann.org

 



 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón