Fréttir og Tilkynningar
Styrkir vegna doktorsnáms frá Rannsóknasjóði HÍ
Til: Rannsóknafólks erlendis
Af póstlistanum hi-starf
Frá vísindasviði:
Í tengslum við nýgerðan samning Háskóla Íslands og menntamálaráðuneytis auglýsir vísindanefnd háskólaráðs styrki til doktorsnáms við Háskóla Íslands. Veittir verða styrkir til framfærslu í allt að þrjú ár líkt og Háskólasjóður Eimskipafélagsins gerir. Styrkirnir verða veittir leiðbeinanda á grundvelli rannsóknaverkefnis (eins og leið b hjá Háskólasjóði Eimskipafélagsins) til að gera honum kleift að greiða doktorsnema styrk til framfærslu. Leiðbeinandi getur einnig sótt um fyrir verkefni þar sem samstarf hans og stúdents er hafið.
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
Frekari upplýsingar veitir Sverrir Guðmundsson á vísindasviði, sími 525
4352 (sverrirg@hi.is). Einnig er upplýsingar og eyðublað að finna á heimasíðu sjóðsins www.hi.is/rsj
Bestu kveðjur / Best regards,
Elva Brá Aðalsteinsdóttir
Sérfræðingur á greiningarsviði
Rannsóknamiðstöð Íslands-RANNÍS
The Icelandic Centre for Research
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
Sími (Tel): +354-515-5812



