Fréttir og Tilkynningar
Rannsókna- og fræðimannastyrkur úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar
Til: Rannsóknafólks erlendis
Rannsókna- og fræðimannastyrkur úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar
Rannsókna- og fræðimannastyrkur úr Minningarsjóði Eðvarðs Sigurðssonar verður veittur í annað skipti þann 1. maí næstkomandi. Styrkurinn er ætlaður til að efla rannsóknir og útgáfu á verkum sem varða sérstaklega íslenskt samfélag, vinnumarkaðinn, hagsmuni launafólks og starfsemi verkalýðshreyfingarinnar. Minningarsjóðurinn var stofnaður árið 1983 til minningar um Eðvarð Sigurðsson, formann Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og er í umsjá Alþýðusambandsins. Hámarksfjárhæð er 500.000 krónur. Styrkurinn er veittur einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er til 1. apríl.
Jafnframt veitir sjóðurinn styrki til að sækja námskeið eða afla sér þekkingar á verkalýðshreyfingunni og málefnum launafólks, innanlands eða erlendis. Þessir styrkir eru afgreiddir tvisvar á ári: 1. september og 1.
desember.
Umsóknareyðublöð auk frekari upplýsinga um sjóðinn, umsóknarfresti og reglur um úthlutun er að finna á:
http://www.asi.is/displayer.asp?cat_id=71&module_id=220&element_id=4214
Bestu kveðjur / Best regards,
Elva Brá Aðalsteinsdóttir
Sérfræðingur á greiningarsviði
Rannsóknamiðstöð Íslands-RANNÍS
The Icelandic Centre for Research
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
Sími (Tel): +354-515-5812



