Fréttir og Tilkynningar
Fræðimannsíbúð Háskólasetursins í Hveragerði
Fræðimannsíbúð Háskólasetursins í Hveragerði
Háskólasetrið í Hveragerði hefur yfir að ráða íbúð fyrir fræði- og
vísindamenn sem laus er til úthlutunar. Íbúðin er áföst húsnæði setursins á Heiðmörk 32 í Hveragerði. Hún er um 60 fm að stærð, á einni hæð og með
tveimur svefnherbergjum, stofu, eldhúskrók og baðherbergi. Hún er búin
húsgögnum, m.a. rúmum fyrir tvo eða þrjá og algengustu heimilistækjum og
búsáhöldum. Hægt er að bæta inn nokkrum dýnum ef þörf er á. Sími er í
íbúðinni en aðeins til innanlandssamtala. Hægt er að fá mötuneytismat
samkvæmt nánara samkomulagi á hagstæðu verði. Á setrinu sjálfu er
skrifstofuaðstaða með tölvum og ADSL sambandi, lítið fundarherbergi,
bókasafn og almenn vinnuaðstaða sem viðkomandi fræðimenn geta notað skv.
nánara samkomulagi ef á þarf að halda. Einnig geta þeir fengið aðgang að
nokkuð vel búninni rannsóknastofu að Reykjum sem er sameiginleg með
Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar er að finna ýmsan rannsóknastofubúnað,
m.a. jónagreini, ljósmæli, pH-mæli, leiðnimæli, súrefnismæli, gruggmæli,
hitaskáp og tæki til að brenna vefsýni. Aðstaða þessi stendur einnig til
boða óháð dvöl í fræðimannsíbúðinni.
Fræðimannsíbúðin er lánuð til þeirra sem tímabundið kjósa að vinna að
fræði- eða rannsóknastörfum í Hveragerði bæði íslenskra og útlenskra. Öll
fræðasvið koma til greina en þeir ganga fyrir um íbúðina sem vinna að
rannsóknum eða fræðastarfi sem tengjast starfssviði setursins eða
verkefnum með skírskotun til byggðarlagsins eða landshlutans. Ekkert er
því til fyrirstöðu að þeir sem nýta íbúðina hafi hjá sér fjölskyldu sína á
meðan á dvölinni stendur.
Íbúðin er lánuð endurgjaldslaust en farið er fram á að viðkomandi
fræðimaðurinn láti Háskólasetrið njóta þess á einhvern hátt fræðilega,
t.d. með því að halda fyrirlestur eða stutt námskeið í sinni fræðigrein
eða um verkefnið sem unnið var að á meðan á dvalartíma stóð eða á annan
hátt sem um semst við framkvæmdastjóra. Gert er ráð fyrir að umfangið á
framlagi þessu taki nokkurt mið af af lengd dvalarinnar og þeirri þjónustu
sem látin er í té.
Þeir sem áhuga hafa á að nýta íbúðina eða vinnuaðstöðu setursins eru
beðnir um að snúa sér til Tryggvi Þórðarsonar, framkvæmdastjóra setursins
(tryggvi@nedrias.is). Senda þarf skriflega (t-póstur) almennar
upplýsingar um umsækjenda, stutta en greinargóða lýsingu á verkefninu sem
vinna skal að auk þess sem tilgreina þarf þann dvalartíma sem óskað er
eftir og hugmyndir um á hvern hátt Háskólasetrið geti notið fræðiþekkingar
eða sérfræðikunnáttu umsækjenda í tengslum við dvölina.
Nánari upplýsingar um Háskólasetrið í Hveragerði má fá hjá
framkvæmdastjóra setursins.
Tryggvi Þórðarson, framkvæmdastjóri
-----------------------------------------------------------------------
Háskólasetrið í Hveragerði, Pósthólf 122, 810 Hveragerði
Aðsetur: Reykir, Ölfusi
S: 433 5326 / 864 5262 Fax: 433 5309



