Fréttir og Tilkynningar
Vísindanefnd auglýsir styrki til doktorsnáms við Háskóla Íslands
Frá vísindasviði Háskóla Íslands:
Vísindanefnd auglýsir styrki til doktorsnáms við Háskóla Íslands. Veittir verða styrkir til framfærslu í allt að þrjú ár líkt og Háskólasjóður Eimskipafélagsins gerir. Styrkirnir verða veittir leiðbeinanda á grundvelli rannsóknaverkefnis (eins og leið b hjá Háskólasjóði Eimskipafélagsins) til að gera honum kleift að greiða doktorsnema styrk til framfærslu.
Leiðbeinandi getur einnig sótt um fyrir verkefni þar sem samstarf hans og stúdents er hafið.
Umsóknareyðublað er að finna á heimasíðu sjóðsins: ( http://www.hi.is/page/rsj_doktorsstyrkir).
Vinsamlegast athugið að svæði eyðublaðsins taka aðeins texta. Ef um myndir, gröf eða töflur er að ræða þá sendið þau skjöl sem viðhengi til:
sverrirg@hi.is. Látið fylgja með tilvísun í umsókn (númer eða nafn umsækjanda).
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
Frekari upplýsingar veitir Sverrir Guðmundsson á vísindasviði, sími 525
4352 (sverrirg@hi.is).
Næst verður doktorsstyrkjum Rannsóknasjóðs úthlutað samhliða hefðbundinni úthlutun úr sjóðnum (umsóknarfrestur í byrjun októbermánaðar).
Bestu kveðjur / Best regards,
Elva Brá Aðalsteinsdóttir
Sérfræðingur á greiningarsviði
Rannsóknamiðstöð Íslands-RANNÍS
The Icelandic Centre for Research
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
Sími (Tel): +354-515-5812



