Fréttir og Tilkynningar
STYRKTAR TÓNLEIKAR 28. mars
Um síðustu jól var ár síðan við misstum æskuvinkonu okkar Margréti Jónsdóttur úr krabbameini. Hún lést 24 ára gömul eftir fimm ára hetjulega baráttu við sjúkdóminn.Okkur vinum hennar langaði að gera eitthvað gott úr þessari lífsreynslu og út kom tónleikaröðin: LJÓSLIFANDI í minningu hennar. Minning hennar er ljóslifandi í huga okkar.
Margrét stundaði nám við Hí í íslensku og sagnfræði. Hún var einstaklega góð vinkona, sterkur karakter með mikinn húmor ásamt ógleymanlegri frásagnagáfu.
Hún fékk mikinn skilning og styrk í veikindum sínum frá þeim félagsskap sem nú er orðinn að samtökunum LJÓSIÐ. Þess vegna viljum við styrkja þau samtök og rennur öll innkoma beint til þeirra þar sem allir listamennirnir gefa vinnu sína og Glitnir styrkir tónleikana.
LJÓSIÐ er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra. Fyrir nánari upplýsingar um Ljósið má fara á ljosid.org
Haldnir verða þrennir tónleikar og til að ná til sem flestra er dagskráin fjölbreytt, frá kóratónlist til þungarokks.
Grensáskirkja: Kórtónleikar 28. mars, kl. 20:00. Verð 2100 krónur. Fram
koma: Diddú,Stefán Hilmarsson og Guðbjörg Magnúsdóttir ásamt Stúlknakór Reykjavíkur og Vox feminae undir stjórn Margrétar Pálmadóttur.
NASA: ROKKTÓNLEIKAR 28. mars, kl 21:00. Verð 1200 krónur.
Fram koma: DR. Spock, Rass, Innvortis og Benny Crespo's Gang FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK: 29. mars, kl. 20:00. Verð 1200 krónur.
Fram koma: Pétur Ben,Múm og Ólöf Arnalds.
Forsala miða er í 12 tónum og Glitni Smáralind, Kringlunni og Kirkjusandi.
Fyrir nánari upplýsingar má fara á myspace.com/ljoslifandi
Fjölmennum og styðjum gott málefni.
Nýtið ykkur það að það getur verið gaman að vera góður og mætið á
tónleika!!:)
Með kveðju og fyrirfram þökkum.
Sandra Rún, Sigríður Soffía og Gestur.



