Fréttir og Tilkynningar
Opinn umsóknafrestur vegna doktorsnáms hjá EMBL
Ágæti viðtakandi,
ég vil minna á að búið er að opna fyrir umsóknir í doktorsnám hjá sameindalíffræðisamtökum Evrópu (EMBL). Hægt er að sækja um nám í starfsstöðum EMBL í Hinxton (Bretlandi), Hamborg (Þýskalandi) og Monterotondo (Ítalíu) og er umsóknarfrestur til 31.maí. Síðar á árinu verður auglýst eftir umsóknum til aðalstarfsstöðvar í Heidelberg (Þýskalandi).
Þessar starfsstöðvar sérhæfa sig í eftirfarandi:
Hinxton - Bioinformatics
Hamborg - Structural Biology
Monterotondo - Mouse Biology/Immunology
Allar nánari upplýsingar má finna á slóðinni:
http://www.embl.org/training/phdprogramme/applications.html
EMBL veitir árlega fjölda styrkja til doktorsnáms og býður upp á frábæra aðstöðu til vísindarannsókna. Vinnutungumál á öllum starfsstöðvum er enska.
Vinsamlega sendu póstinn áfram á þá sem gætu haft áhuga.
Kveðja,
Rebekka



