Fréttir og Tilkynningar
Styrkir Scandinavia-Japan Sasakawa Foundation til rannsóknaverkefna
Íslandsdeild Scandinavia-Jaðan Sasakawa Foundation mun á árinu 2007 veita nokkra styrki til að efla tengsl Íslands og Japans. Aðallega verða veittir styrkir til menntamála og rannsóknaverkefna. Styrki þessa má veita stofnunum og einstaklingum.
Styrkirnir eru til verkefna í samstarfi eða í tengslum við japanska aðila.
Veittir eru ferðastyrkir, námsstyrkir og styrkir til skammtímadvalar í Japan.
Í umsókn, sem verður að vera á ensku, sænsku, norsku eða dönsku, skal gefa stutta en greinargóða lýsingu á fyrirhuguðu verkefni ásamt fjárhagsáætlun og meðmælum a.m.k. tveggja umsagnaraðila. Auk þess verður að fylgja náms- og starferilsll umsækjanda og staðfesting frá samstarfsaðila í Japan og/eða þeim tengilið, sem skipuleggur dvölina þar.
Fyrir hönd fulltrúa Íslands í stjórn Scandinavian-Japan Sasakawa Foundation, tekur ritari Íslandsdeildar:
Helga Magnússon
Skeiðarvogi 47
104 Reykjavík
Sími: 5537705
Fax: 5537570
Netfang: magmag@hi.is
Við umsóknum og veitir allar frekari upplýsingar.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. apríl 2007.



