Fréttir og Tilkynningar
Kynning á atvinnu- og námstækifærum í Evrópu.
EURES á Íslandi stendur fyrir kynningu á náms- og starfstækifærum í Evrópu í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 12. September, kl. 12-18. Kynningin er hluti af evrópsku verkefni sem kallast European Job Days 2007 og er átak sem allar EURES skrifstofurnar taka þátt í. Með þessu er ætlunin að kynna starfsemi okkar og að koma upp vettvangi þar sem fólk í atvinnu- og námsleit getur hitt fulltrúa þjónustustofnanna og samtaka á þessu sviði og rætt málin.
Á svæðinu verða sjö EURES ráðgjafar, frá jafnmörgum löndum, en þeir eru sérhæfðir í að aðstoða fólk við að finna atvinnu í heimalöndum sínum.
Ráðgjafarnir koma frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Bretlandi, Þýskalandi, Frakklandi og Spáni og gefst ykkur tækifæri á að spyrja þau spjörunum úr og fá ráðleggingar um hvers konar störf eru í boði. Auk þess munu þau hafa kynningar um lönd sína og hvernig atvinnu sé þar hægt að finna.
Einnig munu innlend samtök og stofnanir líkt og Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands, Leonardo á Íslandi, Norræna félagið, Nordjobb og AFS kynna starfsemi sína.
Léttar veitingar verða á boðstolnum og það eru allir velkomnir
Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Starfsfólk EURES.



