Fréttir og Tilkynningar
Kynningar á Rannsóknasjóði og Tækjasjóði
Rannsóknamiðstöð Íslands stendur fyrir ítarlegum kynningum á Rannsóknasjóði og Tækjasjóði dagana 6. og 7. september í Reykjavík og á Akureyri. Eiríkur Smári Sigurðarson og Anna Kristín Daníelsdóttir munu kynna sjóðina og hlutverk þeirra.
Þau munu sérstaklega fjalla um:
? styrkhæfi
? tegundir styrkja og reglur
? gerð og mat umsókna
? hlutverk sérfræðinga, fagráða og stjórna ? samninga og eftirfylgni með styrktum verkefnum
Fimmtudaginn 6. september verður kynning í Tæknigarði, Dunhaga 5 í Reykjavík, frá 12:00 til 14:00.
Föstudaginn 7. september verður kynning í stofu R311 í Borgum, Háskólanum á Akureyri frá klukkan 13:15 til 15:15.
Léttar veitingar verða í boði.
Kynningarnar eru öllum opnar. Þátttakendur skrái sig á rannis@rannis.is í síðasta lagi miðvikudaginn 5. september.
Frestur til að skila umsóknum í sjóðina rennur út 1. október 2007.
Upplýsingar um Rannsóknasjóð og Tækjasjóð ásamt reglum og eyðublöðum er að finna á heimasíðu Rannís (www.rannis.is).
Bestu kveðjur / Best regards,
Elva Brá Aðalsteinsdóttir
Sérfræðingur á greiningarsviði
Rannsóknamiðstöð Íslands-RANNÍS
The Icelandic Centre for Research
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
Sími (Tel): +354-515-5812



