Fréttir og Tilkynningar
Framleiðnisjóður auglýsir eftir umsóknum um styrk
Framleiðnisjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna á sviði landbúnaðar haustið 2007. Lögð er áherzla á að verkefnin séu til þess fallin að auka framleiðni og arðsemi í landbúnaði.
Forgangs njóta verkefni sem efla nýsköpun og fjölbreytni innan hins nýja landbúnaðar. Takmarkað fé er til ráðstöfunar í þessu skyni á haustmisseri.
Umsóknum skal skilað fyrir 1. október n.k. til skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyrargötu 3 - 311 Borgarnes, á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Umsóknareyðublöð er einnig að finna á heimasíðu sjóðsins,
veffang: www.fl.is.
Ath. að ofangreindur umsóknafrestur á ekki við um önnur viðfangsefni sem sækja má um stuðning við til sjóðsins s.s. á sviði atvinnunýsköpunar á bújörðum eða önnur atvinnuskapandi verkefni til sveita. Almennur umsóknarfrestur er viku fyrir næsta boðaðan fund hverju sinni.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri, 311 Borgarnes.
Sími 430-4300 / myndsími 430-4309 / netfang fl@fl.is



