Fréttir og Tilkynningar
Launasjóður fræðiritahöfunda: Umsóknarfrestur er til 3. mars
Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum sem veitt verða frá 1. júní 2008. Rétt til að sækja um laun úr sjóðnum hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku.
Meginhlutverk Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Starfslaun eru að jafnaði veitt til hálfs árs, en heimilt er að veita þau til allt að þriggja ára. Þeir sem hljóta starfslaun úr sjóðnum skulu ekki gegna föstu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Starfslaun miðast við núgildandi kjarasamning Félags háskólakennara.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Rannsóknamiðstöð Íslands (RANNÍS) að Laugavegi 13, sími 515-5800, eða á heimasíðu Rannís.
Umsóknir sendist til:
Launasjóður fræðiritahöfunda
RANNÍS
Laugavegi 13
101 Reykjavík



