Fréttir og Tilkynningar
Tækniþróunarsjóður, umsóknarfrestur til 15. febrúar
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra. Hann starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins, nr. 75/2007. Hlutverk sjóðsins er að styðja rannsóknir og tækniþróun sem stuðlar að aukinni samkeppnishæfni atvinnulífsins. Tækniþróunarsjóður hefur heimild til að fjármagna nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs með því að:
a. styrkja tækniþróun og tengdar rannsóknir í þágu nýsköpunar atvinnulífsins, m.a. í samstarfi við stofnanir, háskóla og fyrirtæki,
b. styrkja uppbyggingu sprotafyrirtækja og eiga aðild að þeim á frumstigi nýsköpunar,
c. fjármagna átaksverkefni og markáætlanir á einstökum tæknisviðum til að treysta tæknilegar undirstöður atvinnuveganna, einstaka greinar þeirra eða þvert á greinaskiptingu þeirra,
d. styrkja lítil verkefni á vegum einstaklinga og smáfyrirtækja sem eru líkleg til að verða atvinnu- og tekjuskapandi þrátt fyrir áhættu í upphafi,
e. kosta greiningu á stöðu nýsköpunar og gerð áætlana til styrktar henni.
Af þessum heimildum hefur Tækniþróunarsjóður aðeins styrkt tækniþróun í samræmi við málslið a. og er gert ráð fyrir að svo verði áfram. Stjórn sjóðsins getur aftur á móti, að höfðu samráði við ráðuneytið, ákveðið að verja hluta af fjármagni sjóðsins til verkefna sem falla undir málsliði b.-e. Stjórn sjóðsins hefur ekki heimild til að verja fé til nokkurra annarra málefna en að framan segir. Áður en til útgreiðslu á fé Tækniþróunarsjóð kemur þarf að senda ákvarðanir stjórnar Tækniþróunarsjóðs skriflega til ráðuneytisins með undirskrift formanns. Í framhaldi þess mun rekstrarstjóri ráðuneytisins samþykkja útgreiðslu styrkja, enda séu heimildir í fjárlögum til þess.
Umsóknarfrestur í Tækniþróunarsjóð er 15. september og 15. febrúar ár hvert.



