Fréttir og Tilkynningar
HERA auglýsir Networking-styrki
HERA, samstarf evrópskra stofnana sem fjármagna rannsóknir í hugvísindum, hefur opnað fyrir umsóknir í Networking-styrki.
Umsóknarfrestur er til 2. júní, kl. 13:00 (CET) og skal sækja um í gegnum rafrænt umsóknarkerfi EFS.
Hægt er að tengjast kerfinu í gegnum heimasíðu HERA.
Nánari upplýsingar má nálgast á: http://www.heranet.info/Default.aspx?ID=281.
- Umsókn um Networking-styrki er ekki skilyrði fyrir því að mega sækja í markáætlunina sjálfa (HERA Joint Research Programmes).
- Breytingar á samsetningu samstarfshópa mega eiga sér stað milli Networking-styrkja og markáætlunarinnar sjálfrar.
- Hver umsækjandi getur skilað inn einni umsókn og vísindamenn geta aðeins skráð sig sem samstarfsaðila á eina umsókn.
- Þeir sem sitja í HERA Network Board geta ekki sótt um þá styrki sem nú eru auglýstir.
- Að minnsta kosti þrír aðilar frá mismunandi löndum þurfa að eiga aðild að HERA-samstarfshóp; löndin þurfa öll að leggja af mörkum í sameiginlegan sjóð HERA. Aðalumsækjendur verða að vera styrkhæfir í heimalöndum sínum, þ.e. gagnvart rannsóknarráðum landanna.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Lyngdal Magnússon, magnus@rannis.is, s: 515 5818.



