Fréttir og Tilkynningar

Nordwel-styrkir til doktorsnema og nýdoktora

Til: rannsóknafólks erlendis.

Góðir viðtakendur
Norræna öndvegissetrið Norræna velferðarríkið - sögulegur grundvöllur og
framtíðarverkefni (Nordwel) hefur auglýst styrki handa doktorsnemum og
nýdoktorum sem fást við rannsóknir á sögu og samtíð velferðarríkisins.
Styrkir eru veittir til rannsóknardvalar við einhvern af háskólunum sem eiga
aðild að öndvegissetrinu og gilda um tímabilið 1. janúar 2009 til 30. júní
2010. Umsóknarfrestur rennur út 16. júní 2008.


Frekari upplýsingar er að
finna á heimasíðu öndvegissetursins, sjá
http://blogs.helsinki.fi/nord-wel/mobility/mobility-fellowships/call-for-applications/

Meginviðfangsefni rannsóknarsetursins eru fimm:
1. Trúmál, lútherska og norræna velferðarríkið
2. Norræna velferðarríkið: Borgararéttur og lýðræði
3. Þekkingarumhverfi: Þekking og félagslegir hagsmunir í norræna
velferðarkerfinu
4. Gildakerfi og hugmyndir um lögmæti í norræna velferðarkerfinu
5. Vinnan og gildismat: vinnumarkaðurinn og velferðarríkið

 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón