Fréttir og Tilkynningar

Ókeypis atvinnuauglýsingar til 20. maí 2011

Til 20. maí 2011 býður Stúdentamiðlun atvinnurekendum að skrá atvinnuauglýsingar ókeypis. Auglýsingar sem sendar eru fyrir mánaðarmótin apríl/maí munu birtast á vefnum í 15 daga.

Þeir sem hafa áhuga á að auglýsa ókeypis skulu senda upplýsingar um starfið, vinnutíma, starfstímabil, nafn á tengilið, síma og netfang á rebekka@fs.is.

Þeir sem óska eftir að auglýsa og einnig að fá aðgangi að upplýsingum um stúdenta sem eru á skrá hjá miðluninni þurfa sem fyrr að kaupa aðgang. Til að fá aðgang skal smellt á "Atvinna" hér efst á síðunni og svo á "kaupa aðgang". Aðgangur að vefnum í 15 daga kostar kr. 14.890.



 

 


Leturstærð:

 
Þessi vefur byggir á Eplica - Vefumsjón